Schloss Bellevue
Hér má sjá Schloss Bellevue. Glæsileg bygging.
Neues Rathaus í Leipzig
Smá viðbót, stefni á að setja eitthvað inn á laugardaginn.
Rólegt
Þessi færsla er fyrir mágkonuna. Ég hef frekar lítið gert undanfarið, en fór þó í nokkuð langa göngu í gær og skoðaði þá m.a. þessa kirkju:

Ég fer í 2 próf í þessari viku þannig að ég efast um að ég geri mikið. En ég fer til Weimar föstudaginn fimmtánda og vonandi eitthvað í millitíðinni.
____
Ég gleymdi að bæta við mynd af mér. Sem betur fer átti ég eina.
___
Auðvitað gleymdi ég að minnast á að á laugardaginn sá ég í fyrsta skipti einhverja skemmtun án áfengis. Það var eitthvað baptistadæmi. Ég stoppaði ekki lengi.
Laugardagur
Dandý sys er að gifta sig í dag. Verst að ég kemst ekki. Ich gratuliere Ihnen zur Hochzeit und wünsche Ihnen alles Gute. (Þarf þetta ekki að vera á þýsku fyrst að ég er hérna?)
En ég ákvað að fara út og taka myndir (í 36° hita). Það var of heitt til að hanga lengi úti en hér eru þó tvær.

Þetta er Thomaskirche, hér starfaði Bach.

Hér er mynd sem er af gosbrunni við Augustusplatz. Það er einhver saga á bak við þetta en ég man í augnablikinu ekki hver hún er.
Heitt
Dresden
Júlía hin þýska bauð mér til Dresden um helgina. Falleg borg. Ég fékk gistingu í Blankenstein, sem er lítið þorp rétt hjá. Frábært allt saman. Hún á inni hjá mér stóran greiða.
Hér má sjá gamla póstsúlu í Wilsdruff, en við tókum rútu þaðan til Dresden.

Hér fyrir neðan má sjá kaþólska kirkju. Mér fannst þær myndir sem ég tók að utan vera of ljótar til setja á netið. Þessi er ásættanleg.
Að því loknu fórum við í Frauenkirche. Hún er stórkostleg, en við máttum ekki taka myndir að innan. Að sjálfsögðu fór ég eftir reglunum en ég sá þó fólk vera að taka myndir. Hún er enn flottari að innan en utan.

Kaþólska kirkjan var endurbyggð frekar snemma, en endurbyggingu Frauenkirche lauk ekki fyrr en 2005.
Að lokum langar mig til að setja inn eina mynd af Zwinger, sem er stórkostlegt fyrirbæri.

Fitna
Ég held að ég sé búinn að fitna hérna. Ég ætlaði að taka myndir í gær en lenti í því að sleppa því. En ég fer kannski út úr bænum um helgina, þá er líklegt að ég hafi eitthvað merkilegt að segja.
Altes Rathaus
Ég hefði átt að vera búinn að setja þessa mynd inn fyrir löngu.






